Íslenskt sjávarfang er öflugt fiskvinnslufyrirtæki með um 115 starfsmenn. Ferskfiskvinnsla
fyrirtækisins er í Kópavogi , niður við smábátahöfnina yst á Kársnesinu. Fyrirtækið hefur einnig
rekið frystihúsið á Þingeyri frá árinu 2015.
Íslenskt sjávarfang hefur sérhæft sig í vinnslu á þorski, ýsu og ufsa til útflutnings og vinnur úr um
7 – 9 þúsund tonnum af hráefni á ári.. Megináhersla hefur verið á ferskar afurðir með flugi og
frystingu. Gott starfsfólk og samstarf við útgerðir og útflytjendur hefur gert fyritækinu kleift að
vaxa mikið og er í dag eitt öflugasta fiskvinnslufyrirtæki landsins.
